Corylus americana

Ættkvísl
Corylus
Nafn
americana
Íslenskt nafn
Runnahesli
Ætt
Birkiætt (Betulaceae)
Lífsform
Runni
Kjörlendi
Sól-hálfskuggi
Blómalitur
Brúnn
Blómgunartími
Maí
Hæð
1 - 3 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, allt að 1-3 m hár og 3-4 m breiður. Ungir sprotar kirtildúnhærðir.
Lýsing
Lauf breiðegglaga, hjartalaga eða bogadregin við grunninn, stutt oddregin, 12,5 × 8 sm, hár á strjálingi á efra borði, dúnhærð neðan, óreglulega tvísagtennt, laufleggur allt að 1,5 sm, kirtildúnhærður. Karlreklar allt að 7,5 sm langir. Aldin í endastæðum hnoðum, 2-6 saman. oddvala-egglaga allt að 1,5 sm löng, dálítið hliðflöt, stoðblöð allt að 2,5 sm, dúnhærð, skörðótt. Blómin eru einkynja (einstök blóm eru annað hvort karlkyns eða kvenkyns, en bæði kynin er að finna á sömu plöntunni), frævuð af vindinum. Plantan er sjálffrjóvgandi. Gulir og appelsínugulir haustlitir.
Uppruni
A N-Ameríka (Maine til Georgia, vestur að Saskatchewan og Oklahoma).
Sjúkdómar
Laus við skordýraplágur og sjúkdóma.
Harka
4
Heimildir
= 1, http://edis.ifas.ufl.edu, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í runnabeð, þyrpingar.
Reynsla
Er ekki til í Lystigarðinum 2013, hefur verið sáð en ekki nýlega. Ætti að geta þrifist hér.