Cotoneaster ambiguus

Ættkvísl
Cotoneaster
Nafn
ambiguus
Íslenskt nafn
Surtarmispill
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Samheiti
Cotoneaster acutifolius Turcz. v. ambiguus (Rehder & E. H. Wilson) Hurusawa; C. pseudoambiguus J. Fryer & B. Hylmö.
Lífsform
Lauffellandi runni.
Kjörlendi
Sól til hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur með bleikleita slikju.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
1-2 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni allt að 2 m hár, líkur broddmispli (C. acutifolius). Smágreinar rauðbrúnar eða grábrúnar, grannar, stinnhærðar, næstum hárlausar þegar þær eru orðnar gamlar. Laufleggur 2-5 mm, langhærðir, axlablöð oftast skammæ, lensulaga eða band-lensulaga, langhærð.
Lýsing
Laufblaðkan oddbaugótt-egglaga til tígul-egglaga, 2,5-6 × 1,5-3 sm, dúnhærð á neðra borði í fyrstu, verður hárlaus, langhærð á efra borði, verður fljótt hárlaus, grunnur breiðfleyglaga, langydd eða ydd efst. Hálfsveipir 1,5-3,6 sm, með 5-10 blóm, blómskipunarleggir og blómleggir langhærðir, stoðblöð skammæ, lensulaga eða bandlaga, 2-3 mm, langhærð. Blómleggir 4-6 mm. Blómin 7-8 mm í þvermál. Blómbotninn langhærður á ytra borði í fyrstu, verður hárlaus eða næstum hárlaus. Bikarblöð þríhyrnd, 1-1,5 × 2-2,5 mm, ydd. Krónublöð upprétt, hvít með bleikleita slikju, breið-egglaga eða næstum kringlótt, 3-4 mm og um það bil jafn breið, grunnur með stutta nögl, snubbótt eða trosnuð. Fræflar 20, ögn styttri en krónublöðin. Eggleg þétt langhærð efst, stílar 2-5, ekki samvaxnir, stundum ekki lengri en fræflarnir. Aldin svört, glansandi, eggvala eða næstum hnöttótt, 8-10 × 6-7 mm, langhærð efst. Kjarnarnir/fræin 2 eða 3, sjaldan 4 eða 5. Aldin í september-október.
Uppruni
Kína (Gansu, Guizhou, Hubei, Ningxia, Shaanxi, Sichuan, Yunnan).
Harka
5
Heimildir
1, www.eFloras.org Flora of China, http://en.hortipedia.com
Fjölgun
Sumargræðlingar, haustsáning.
Notkun/nytjar
Í limgerði, sem stakstæður runni, í þyrpingar, í blönduð beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er ein aðfengin planta sem gróðursett var í beð 1993, falleg planta sem kól dálítið allra fyrstu árin. Harðgerður og hefur reynst vel í Lystigarðinum, bráðfallegur runni. (A4-C27)
Útbreiðsla
Vex í fjallahéruðum, hálf skóglausum brekkum, skógum með strjál tré, skógarjöðrum í 1800-3000 m h. y. s. Þolir frost allt að -23,3 °C.