Cotoneaster dammeri

Ættkvísl
Cotoneaster
Nafn
dammeri
Íslenskt nafn
Breiðumispill
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Hálfsígrænn runni
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Sumar
Hæð
0,2-0,45 m
Vaxtarhraði
Hraðvaxta.
Vaxtarlag
Jarðlægur, sígrænn til hálfsígrænn runni, allt að 45 sm hár og 180 sm breiður, þekjurunni. Langar, drúpandi greinar, greinaendar með strjála dúnhæringu, verða hárlausir. Greinabyggingin minnir á fiskidálk. Börkur er þunnur, rauðbrúnn, ungar greinar dúnhærðar.
Lýsing
Lauf stakstæð, heil, lítil, allt að 3 × 1,4 sm, oddbaugótt, til öfugegglaga-aflöng, dökk, glansandi græn, verða fljótt alveg hárlaus. Haustlauf purpuralit. Blómin eru hvít, allt að 13 mm í þvermál, oftast stök, sjaldan 3 í knippi, koma snemmsumars, smá en mörg og mjög skrautleg. Fræflar 15-20, frjóhnappar purpuralitir. Aldin 3 mm, næstum hnöttótt, skærrauð, smá, eru á runnanum allan veturinn, þroskast í september og fram í október, geta verið falleg, kjarnar/fræ 3-5.
Uppruni
M Kína í 1300-2600 m h. y. s.
Harka
5
Heimildir
= 1, http://www.hort.uconn.edu
Fjölgun
Sumargræðlingar, haustsáning, græðlingar með hæl síðsumars.
Notkun/nytjar
Í ker, í brekkur, í steinhæðir, í þyrpingar, sem þekjurunni og á veggi. Getur litið út fyrir að vera illa hirtur, þarf snyrtingu. Vindþolinn.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2001 og gróðursett í beð 2004. Þrífst vel. Meðalharðgerður-viðkvæmur. Þarf helst vetrarskýli.
Yrki og undirteg.
Cotoneaster dammeri 'Skogsholm' er yrki sem talið er harðgerðara, en þar fyrir utan er til fjöldinn allur af yrkjum í ræktun erlendis