Cotoneaster dielsianus

Ættkvísl
Cotoneaster
Nafn
dielsianus
Íslenskt nafn
Bogamispill
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Hálfsígrænn runni
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Bleikur
Blómgunartími
Snemmsumars
Hæð
1-2 m (-3 m)
Vaxtarlag
Hálfsígrænn fínlegur runni með strjálar greinar. Ungar greinar gul- eða grændúnhærðar, greinar uppréttar, bogformaðar-hangandi, með fölbrúna lóhæringu.
Lýsing
Lauf 2,3 × 1,3 sm, bogadregin-oddbaugótt, egglaga til öfugegglaga, leðurkennd, með gulgrá lóhæringu á neðra borði. Blómin bleik, 3-7 í knippi, bikarblöð hvassydd, krónublöð upprétt. Aldin hálfhnöttótt, blóðrauð til ribsberjarauð, kjarnar/fræ 2-5.
Uppruni
Kína
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sumargræðlingar, haustsáning, græðlingar með hæl síðsumars.
Notkun/nytjar
Sem stakstæður runni, í þyrpingar, í beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2001 og gróðursett í beð 2004, þrífst vel, og önnur sem sað var til 2006 og er enn í sólreit.Meðalharðgerður, ekki mikið ræktaður hérlendis. Lítt reyndur í garðinum en er í uppeldi.