Cotoneaster frigidus

Ættkvísl
Cotoneaster
Nafn
frigidus
Íslenskt nafn
Fjallmispill
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Runni - lítið tré
Kjörlendi
Sól - hálfskuggi
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júní
Hæð
2-5 m (-10 m)
Vaxtarhraði
Hraðvaxta
Vaxtarlag
Lauffellandi runni eða lítið tré með skástæðar, uppréttar greinar. Nær allt að 10 m hæð í heimkynnum sínum og verður álíka breiður.
Lýsing
Lauf allt að 12 sm, oddbaugótt til oddbaugótt-aflöng eða aflöng-öfugegglaga, mattgræn, ullhærð á neðra borði í fyrstu. Blómin allt að 8,5 mm í þvermál, hvít, í knippum, sem eru allt að 7,5 sm í þvermál. Blómin eru tvíkynja og eru frævuð af flugum. Aldin allt að 5 mm, breið-sporvala, ljósrauð. Aldinin laða að fugla að vetrinum. Hvert aldin með 2 smáhnetur/fræ.
Uppruni
A Asía - Himalaja. Runnaþykkni og árbakkar einkum í Nepal, 2200-3400 m h.y.s. frá Utar Pradesh til SV Kína. Árdalir, skógar lauftrjáa í hlíðum í 2800-3300 m h.y.s. í Tíbet.
Sjúkdómar
Er viðkvæmur fyrir hunangssvepp (Armillaria mellea).
Harka
7
Heimildir
1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Saning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Þyrpingar, raðir, í blönduð beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafnu, sem sáð var til 2008, er í sólreit 2012.