Cotoneaster horizontalis

Ættkvísl
Cotoneaster
Nafn
horizontalis
Íslenskt nafn
Hengimispill
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi runni eða hálfsígrænn
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi í skjóli
Blómalitur
Rauð með hvítu
Blómgunartími
Síðla vors til snemmsumars
Hæð
0.3-0,4 (-1 m)
Vaxtarhraði
Hægvaxta.
Vaxtarlag
Lauffellandi-hálfsígrænn runni, flatvaxinn, 10-40 sm hár og 150-180 sm breiður. Smágreinar útflattar, kambskiptar, minna á fiskidálk. Jarðlægur runni, sem þekur vel. Telst hálfsígrænn þar sem hann fellir laufið seint að hausti og oft ekki fyrr en komið er fram á vetur.
Lýsing
Lauf allt að 1,3 sm, hálfkringlótt eða breið-oddbaugótt, glansandi, dökk græn. Rauðir haustlitir. Blómin rauð með hvítu, stök eða í pörum, Fræflar 10-13. Aldin 5 mm, næstum hnöttótt, appelsínurauð, kjarnar/fræ 2-4.
Uppruni
V Kína.
Harka
4
Heimildir
1, http://plantality.com
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í ker, í kassa, í steinhæðir og blönduð beð, þyrpingar, jaðrar. Auðræktaður, vinsæll, hálfsígrænn runni. Stofnarnir vaxa í fallegu kambmynstri og er einstaklega fallegur upp við vegg, en honum er eðlilegt að þekja jarðveginn.
Reynsla
Þrífst þokkalega í garðinum en kelur mismikið eftir árum (0-3). Þarf skjólgóðan stað til að þrífast sem skyldi + kalkríkan jarðveg með góðri framræslu. Þar sem hann er gróðursettur upp við vegg, teygir hann sig upp eftir honum og getur þá orðið 1 m eða meir á hæð og annað eins á breidd með tímanum.
Yrki og undirteg.
Fjöldi yrkja í ræktun erlendis og eru 'Ascendens', 'Robusta' og 'Saxatilis' í ræktun í garðinum. Þar fyrir utan má nefna að rækta mætti afbrigðið C. horizontalis v. wilsonii Havemeyer ex Wils. sem er allt að 2 m á hæð erlendis, greinar útstæðar og niðursveiðgar, lauf stærra en á aðaltegundinni og dökkrauð aldin.