Cotoneaster nanshan

Ættkvísl
Cotoneaster
Nafn
nanshan
Íslenskt nafn
Vormispill
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Samheiti
Cotoneaster praecox
Lífsform
Skriðull runni
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi
Blómalitur
Bleikur
Blómgunartími
Vor
Hæð
0,4-0,6 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, 40-60 sm hár og 120-180 sm breiður, kröftugur, lágvaxinn, er aðallega ræktaður vegna rauðra berja og fallegra glansandi, grænna laufa. Greinar bogsveigðar til skríðandi. Stofnarnir eru bogasveigðir og skriðulir og mynda þétta breiðu, sem erfitt er að komast í gegnum, eða útbreidda, runnkennda þúfu. Stofnarnir eiga það til að slá rótum ef þeir snerta moldina.
Lýsing
Lauf allt að 2,5 sm, egglaga, kringluleit, dökkgræn ofan, ljósari neðan, verða rauð og falla fljótt af, verða rauðpurpura að haustinu. Blóm 1-2, lítil, bleik blóm koma að vorinu, ekki sérlega falleg. Af blómunum kemur fjöldi lítilla skærrauðra aldina sem þroskast síðla sumars og standa fram eftir vetri. Aldinin skera sig vel frá kringlóttum, glasandi, dökkgrænum laufinum, allt að 12 mm, hnöttótt, kjarnar/fræ 2. Þolir vel loftmengun.
Uppruni
Kína.
Sjúkdómar
Sveppaskemmdir á laufi, lýs og spunamaurar geta verið til vandræða
Harka
7
Heimildir
= 1, http://www.missouribotanicalgarden.org
Fjölgun
Sumargræðlingar, haustsáning, (síðsumargræðlingar).
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í þyrpingar, í brekkur, látnir hanga fram yfir vegg, í kanta eða sem þekjurunni. Berin laða að fugla að vetrinum.
Reynsla
Hefur reynst þokkalega hérlendis.