Cotoneaster roseus

Ættkvísl
Cotoneaster
Nafn
roseus
Íslenskt nafn
Roðamispill
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi runni
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Hvítur með rauðleita slikju
Blómgunartími
Júní
Hæð
1-2 m (-5 m)
Vaxtarlag
Lauffellandi, uppréttur runni, 1-2 m hár. Greinar grannar, uppréttar, bogsveigðar, með hvítt hár í fyrstu. Ársgamlar greinar hárlausar.
Lýsing
Laufin þunn, 2-6 sm löng, oddbaugótt eða egglaga til aflöng, ydd eða snubbótt, dálítið glansandi eða mött og hárlaus ofan. Hárlaus eða lítið eitt dúnhærð neðan. Blómin 2-9 í knippi, krónublöðin upprétt, hvít með rauðleita slikju. Fræflar 20. Aldin rauð eða dökkrauð, 7 mm löng, kjarnar/fræ 1-3.
Uppruni
NV Himalaja, Afghanistan.
Harka
6
Heimildir
= 1,5
Fjölgun
Haustsáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í blönduð runnabeð, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til 2 plöntur undir þessu nafni sem sáð var til 1978 og gróðursettar í beð 1984 og 1988. Hefur reynst þokkalega í garðinum (k:0-4). Lítið kal flest ár en kelur mikið inn á milli.