Cotoneaster tomentosus

Ættkvísl
Cotoneaster
Nafn
tomentosus
Íslenskt nafn
Dúnmispill
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Samheiti
Cotoneaster nebrodensis auct., Mespilus tomentosa Aiton (basionym)
Lífsform
Lauffellandi runni
Kjörlendi
Sól og hálfskuggi
Blómalitur
Hvítur til fölbleikur
Blómgunartími
Snemmsumars
Hæð
0,6-1 m (-2 m)
Vaxtarhraði
Fremur hægvaxta.
Vaxtarlag
Lauffellandi, lítt greinóttur runni, með bugðóttar, þyrnalausar, baksveigðar greinar. Ungar greinar eru þaktar grárri dúnhæringu, verða hárlausar með aldrinum og eru þá með purpuragulan börk.
Lýsing
Laufin eru sumargræn, heilrend, leggstutt, stakstæð, blaðkan er oddbaugótt til egglaga, oft bogadregin bæði við grunninn og í oddinn, 3 til 6 sm löng með 4-5 æðastrengi á hvorri hlið, dökkgræn á efra borði og mött, verða næstum hárlaus, neðra borðið er þakið þéttri, grárri dúnhæringu. Blómin eru 3-7 (12) í hverri blómskipun, blómskipunin er hálfsveipur, sem er endastæðir eða sjalda axlastæður. Knúbbarnir eru öfugegglaga á lóhærðum blómleggjum. Bikarblöð þríhyrnd, þéttlóhærð, græn. Krónublöðin 5 +, ögn lengri en bikarblöðin, bogadregin, hvít eða fölbleik, stundum rauðleit á ytra borði, fræflar 20, en stílar 2-3(4). Aldin eru rauð, hálfhnöttótt, hærð, 8-10 mm í þvermál, með 2-3(4) kjarna/fræ.
Uppruni
S Evrópa. Svæðið kringum Svartahafið (meginlandsloftslag með köldum vetrum og heitum sumrum, úrkoman er alltaf mjög lítil). Í heimkynnum sínum vex runninn á runnaheiðum og í skógarjöðrum.
Harka
6
Heimildir
1, http://www.actaplantarum.org
Fjölgun
Haustsáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í beð, í brekkur, í stór ker og kassa,í blönduð runnabeð, í jaðra.
Reynsla
Í Lystigarðinum eru til þrír gamlir runnar, sem þrífast mjög vel. Einnig einn runni sem sáð var til 1973 og gróðursettur í beð 1986, þrír runnar sem sáð var til 1981 og gróðursettir í beð 1985 og 1988 og einn sem sáð var til 1987 og gróðursettur í beð 1994. Allir þrífast mjög vel. Mjög harðgerður runni sem hefur reynst afar vel Norðanlands, þar á meðal í Lystigarðinum. Kal nánast alltaf 0 t.d. á eintaki úr villtri náttúri frá Valais í Sviss í E5-P07 sem hefur verið fjölgað töluvert af hér norðanlands.