Cotoneaster transcaucasicus

Ættkvísl
Cotoneaster
Nafn
transcaucasicus
Íslenskt nafn
Kákasusmispill*
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Samheiti
Cotoneaster obovatus Pojark.
Lífsform
Lauffellandi runni
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Vor-snemmsumars.
Hæð
1-2 m (-3 m)
Vaxtarlag
Greinar uppréttar og útstæðar, smágreinar kastaníubrúnar eins og korkfrumurnar, í byrjun með hvítleit hár.
Lýsing
Laufin þunn eða næstum leðurkennd, á blómlausum sprotum eru þau oddbaugótt til hálkringlótt, 19-28 × 16-21 mm, bogadregin eða snubbótt í oddinn, grunnur fleyglaga til snubbóttur, milligræn ofan, mött, hærð, með 3-5 æðastrengjapör, lóhærð neðan, laufleggir 4-7 mm langir, lóhærðir. Sprotar með blómum 15-35 mm langir með 2-3 lauf og 3-12 blóma blómskipunin, blómleggir 1-5 mm, blómbotn bollalaga, með hvítleit, þétt hár eða er lóhærður, bikarblöð snubbótt, hvassydd eða ydd, blómin fölbleik í knúbbinn, krónan 8-10 mm, krónublöð útstæð, hvít, frjóhnappar hvítir. Aldin öfugegglaga, 8-9 mm, fölrauð, lítið eitt hærð, með 1-2 kjarna/fræ.
Uppruni
Armenía, Íran, Tyrkland, Aserbajdan.
Heimildir
http://databaze.dendrologie.cz
Fjölgun
Haustsáning, sumargræðlingar.
Notkun/nytjar
Í blönduð runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2007. Gróðursett í beð 2008, lofar góðu.