Cotoneaster zeravschanicus

Ættkvísl
Cotoneaster
Nafn
zeravschanicus
Íslenskt nafn
Mongólamispill
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi runni
Kjörlendi
Sól eða hálfskuggi
Blómalitur
Móhvítur með litlar, bleikar doppur
Blómgunartími
Vor-snemmsumars
Hæð
2-2,5 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni, 2-2,5 m hár, greinar þéttstæðar, uppréttar, smágreinar kastaníubrúnar, hærðar í fyrstu. Getur orðið enn hærri erlendis.
Lýsing
Laufin á blómlausum greinum þunn, breið-egglaga, næstum kringlótt eða breið-oddbaugótt, 23-42 × 20-37 mm, oddlaus, grunnur snubbóttur eða þverstýfður, milligræn ofan, ögn gljáandi, verða fljótt mött, lítið eitt hærð í byrjun, með 4-6 æðastrengjapör, þétthærð neðan, laufleggir 3-5 mm. Stönglar með blóm 2-3 sm langir, með 2-3 lauf, blómskipunin þétt, 7-12 blóma, blómleggurinn 1-10 mm, blóm að blómbotni meðtöldum 3-5 mm löng, bleik í knúbbinn, blómbotn trektlaga, næstum hárlaus, Bikarblöð snubbótt eða ydd, hárlaus, jaðrar hærðir, krónan 8-9 mm, krónublöð trosnuð, móhvít með litla, bleika bletti, fræflar 10-14, frjóðþræðir og frjóhnappar hvítir. Aldin öfugegglaga, 8-10 mm, rúbínrauð til dumrauð, hrímug, kjarnar/fræ 2.
Uppruni
Tajikistan, Kasakstan.
Heimildir
http://databaze.dendrologie.cz, http://en.hortipedia.com, http://www.gardening.eu
Fjölgun
Haustsáning, sumargæðlingar.
Notkun/nytjar
Beð, stakstæð, þyrpingar, brekkur
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1978. Gróðursett í beð, mjög fallegur runni.