Crataegus × almaatensis

Ættkvísl
Crataegus
Nafn
× almaatensis
Íslenskt nafn
Laufþyrnir
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Samheiti
C. dshungarica Zab.
Lífsform
Lauffellandi, lítið tré
Kjörlendi
Sól (til hálfskuggi)
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júlí
Hæð
3-4 m
Vaxtarlag
Krónan lág, stundum runnkennt tré. Börkur gamalla greina og stofna dökkbrúnn eða brúngrár. Blómskipunargreinar hárlausar. Engir þyrnar eða aðeins fáeinir, sterklegir, glansandi, 1-2 sm langir. Laufþyrnirinn frýs gjarnan grænn og fær því ekki neina áberandi haustliti.
Lýsing
Laufin heil, stakstæð, fjaðurstrengjótt, egglaga eða oddbaugótt-egglaga, breið-tígullaga á langsprotum, odddregin og með fleyglaga grunn, grunn 5-(7) flipótt eða með flipakenndar tennur, hasstennt tennur vita upp á við, óreglulega tennt, stundum hvassydd, á stuttgreinum eru laufin 4-6 × 3-4 sm, allt að 8 × 6,5 sm á langsprotum. Ung lauf með strjála hæringu, verða hárlaus með aldrinum, dökkgræn ofan, ljósari á neðra borði. Laufleggir 1-3 sm langir. Axlablöð stór, einkum á langsprotum, breiðtígullaga, kambtennt, hanga lengi á greinunum. Blómskipunin strjálblóma, hálfsveipur með mörg blóm, hárlaus, 5-7 (allt að 9) sm í þvermál, blómin 1,3-1,8 sm í þvermál, með hvít krónublöð, bikarblöðin þríhyrnd, hvassydd, baksveigð þegar aldinið er þroskað, fræflar 20 með gulhvíta frjóhnappa, stílar 3-5. Aldinin næstum kúlulaga, um 13 mm í þvermál, lilla-svört, glansandi, lítið eitt doppótt með safaríkt aldinkjöt.
Uppruni
A Síbería og N Kína
Harka
z3
Heimildir
http://ru.wikipedia.org, http://en.hortipedia.com
Fjölgun
Haustsáning.
Notkun/nytjar
Stakstæð tré, í þyrpingar, í raðir, í stór runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er þessi tegund ekki til, en hefur vaxið í Grasagarði Reykjavíkur í rúmlega 30 ár og reynst þar harðgerð.
Útbreiðsla
Ath. betur - nafn ekki í helstu heimildum! Crataegus almaatensis Pojark er í rússnesku flórunni og Crataegus × almaatensis Pojark í nokkrum rússneskum frælistum. Síðarnefnda nafnið er samþykkt.