Crataegus altaica

Ættkvísl
Crataegus
Nafn
altaica
Íslenskt nafn
Fjallaþyrnir
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi, lítið tré
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Snemmsumars
Hæð
3-4 m
Vaxtarhraði
Hægvaxta
Vaxtarlag
Láxvaxið, allt að 4 m hátt, krónumikið tré. Greinar með fáeina, grófgerða þyrna, 2-3 sm langa.
Lýsing
Laufin allt að 4 sm, egglaga, djúpflipótt, næstum fjaðurskipt með vörtótt-tennta jaðra, skærgræn. Blómin í fáblóma, sveiplíkum skúfum. Krónublöð um 1 sm í þvermál. Aldin 6-10 mm í þvermál, hnöttótt, gullgul.
Uppruni
M Asía
Harka
5
Heimildir
= 1,2,7
Fjölgun
Haustsáning.
Notkun/nytjar
Stakstæð tré, í þyrpingar, í blönduð beð.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta í sólreit 2013, sem sáð var til 2000.
Útbreiðsla
Ath. að Þyrnar blandast í náttúrunni og ekki er víst að réttar tegundir komi upp af fræi! Mikill ruglingur er greinilega í þessari ættkvísl og reynist jafnvel færustu sérfræðingum erfitt að greina þær til tegundar.