Crataegus crus-galli

Ættkvísl
Crataegus
Nafn
crus-galli
Íslenskt nafn
Sporaþyrnir
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi runni eða lítið tré
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júní
Hæð
3-5 m
Vaxtarlag
Krónan mjög útbreidd, með flatan topp, greinar oft láréttar, þyrnar stinnir, 3-8 sm í fyrstu, seinna allt að 15 sm langir og greinóttir.
Lýsing
Lauf 2,5-10 × 1- 3 sm, öfugegglaga, fleyglaga við grunninn, heilrend, bogadregin í oddinn eða snöggydd, tennt, hjartalaga, dökk glansandi-græn, hárlaus ofan og neðan, verða appelsínurauð að haustinu. Blómin 1,5 sm í þvermál í hárlausum hálfsveipum, 5-7 sm, fræflar 10, frjóhnappar bleikir, stílar 2. Aldin 1 sm, hálfkúlulaga, djúprauð, langæ, standa fram á næsta vor á trénu.
Uppruni
A N Ameríka
Harka
5
Heimildir
1
Fjölgun
Haustsáning.
Notkun/nytjar
Í limgerði, sem stakstæð tré, í þyrpingar, í runnabeð.
Reynsla
Meðalharðgert tré, þolir vel klippingu, fallegir appelsínurauðgulir haustlitir. Lítt reyndur, var sáð í Lystigarðinum 1994 og var stuttan tíma í sólreit, var líka sáð 1991 og var gróðursett í uppeldisbeð, lifði skamman tíma.
Yrki og undirteg.
Nokkrar undirtegundir og yrki í ræktun erlendis.