Crataegus intricata

Ættkvísl
Crataegus
Nafn
intricata
Íslenskt nafn
Krókaþyrnir
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi runni eða lítið tré
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júní
Hæð
1-3 m
Vaxtarlag
Lauffellandi runni eða lítið tré, rúmlega 3 m hátt. Greinar með bogna þyrna 2,5-4,2 sm langa.
Lýsing
Laufin eru oftast breiðari um eða neðan við miðju, grunn- og hvassflipótt, dökkgræn og mjúk til hærð. Blómin hvít, í klösum. Aldin eru breiðust ofan við miðju, rauð, appelsínugul, gul eða græn.
Uppruni
NA N Ameríka.
Harka
5
Heimildir
1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Haustsáning.
Notkun/nytjar
Stakstæð tré eða runnar, í þyrpingar, í raðir, eða sem óklippt limgerði.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til eitt tré undir þessu nafni sem sáð var til 1978 og gróðursett í beð 1988. Hefur reynst þokkalega í garðinum (k:0-2), þolir vel klippingu, hefur skánað með aldrinum.
Yrki og undirteg.
C. intricata var. straminea Palmer. Frjóhnappar bleik-purpuralitir, berin gulgræn eða fölappelsínugul.