Crataegus nigra

Ættkvísl
Crataegus
Nafn
nigra
Íslenskt nafn
Svartþyrnir
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Tré
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Snemmsumars
Hæð
2-5 m
Vaxtarlag
Lauffellandi tré, allt að 5 m hátt. Krónan hvelfd. Greinar stinnar, grá-lóhærðar í fyrstu en verða hárlausar með aldrinum, purpurabrúnar. Þyrnar allt að 1 sm, oft mjög fáir.
Lýsing
Lauf 3-10 × 2,5-7 sm, þríhyrnd til egglaga, grunnur fleyglaga til þverstýfður, jaðrar með 7-11 grunna flipa, fliparnir sagtenntir. Laufin mattgræn, dúnhærð ofan og neðan laufleggir allt að 1,5 sm, þéttdúnhærðir, axlablöð með stórar hvassar tennur. Blóm 1,5 sm í þvermál, hvít en verð bleik með aldrinum, eru í litlum, dúnhærðum hálfsveipum. Fræflar 20, frjóhnappar gulir, stílar 5. Aldin 1 sm, hálfhnöttótt, svört, gljáandi, holdið mjúkt.
Uppruni
SA Evrópa, Ungverjaland.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Haustsáning.
Notkun/nytjar
Stakstætt tré, í þyrpingar, í blönduð runnabeð.
Reynsla
Í Lystigarðinum var til ein planta sem sáð var 1984 og gróðursett í beð 1988, lifði aðeins fáein ár þar.