Crataegus okanaganensis

Ættkvísl
Crataegus
Nafn
okanaganensis
Íslenskt nafn
Glansþyrnir*
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Samheiti
Crataegus okennonii ssp. wellsii, Crataegus okanaganensis var. wellsii
Lífsform
Lauffellandi runni - lítið tré
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júní
Hæð
3-6 m
Vaxtarlag
Runni-lítið tré, 3-6 m hár, ársprotar milli eða dökkbrúnir, smágreinar (nývaxnar) með strjála dúnhæringu.
Lýsing
Þyrnar sterklegir, 2-4 sm langir, glansandi dökkbrúnir meðan þeir eru ungir, bogsveigðir. Laufleggir 1-2 sm langir með strjála dúnhæringu, kirtlalausir eða með smáa svarta kirtla í fyrstu. Blaðkan 3,5-6 sm löng, egglaga eða eggtígullaga eða sjaldan breiðoddbaugótt til mjóegglaga, með 3-4 hvassydda flipa á hvorri hlið, jaðrar tvítenntir, 4-5 æðastrengir hvoru megin, dálítið greyptar ofan, með þétt aðlæg hár neðan í fyrstu, en þau fara af með aldrinum. Dúnhæringin er helst á æðastrengjum á neðra borði. Laufin eru dálítið leðurkennd, glansandi á efra borði einkum þegar þau eru ung, lauf í vexti rauðleit, bronslit að haustinu. Blómskipunin hvelfdur skúfur, með 10-20 blómum, greinarnar mismikið ullhærðar, með kirtildoppur, stoðblöð skammæ, bandlaga með kirtla á jöðrunum. Blóm 12-15 mm í þvermál, áberandi bollalaga í fyrstu. Blómbotn með ullhæringu aðeins neðst eða alveg hárlaus. Krónublöð meira eða minna kringlótt, hvít. Fræflar 10, frjóhnappar beinhvítir eða stundum mjög fölbleikir. Fræva og stílar 2-3(-4). Aldin 8 mm í þvermál, venjulega flöskulaga, hárlaus, rauð í fyrstu seinna vínrauð til djúppurpura (stöku sinnum svört). Við góðar aðstæður eru þau með upprétta-skástæða bikarflipa en stundum eru þeir stuttir og baksveigðir. Fræ 2-3, rákótt á bakhliðinni, hliðflöt, bústin eða grunnt trosnuð.
Uppruni
N Ameríka. (Okanagan dalur).
Heimildir
hppt://plants.jstor.org; biolgy.burkemuseum.org/herbarium/waflora/checklist.php?Family
Fjölgun
Haustsáning.
Notkun/nytjar
Í runnabeð, í þyrpingar.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2005 og er í sólreit 2013.