Crataegus orientalis

Ættkvísl
Crataegus
Nafn
orientalis
Íslenskt nafn
Austurlandaþyrnir*
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Lauffellandi tré
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júní
Hæð
4-6 m (-7 m)
Vaxtarlag
Tré, allt að 7 m hátt í heimkynnum sínum með útstæðar greinar, stuttgreinar eru ummyndaðar í þyrna, dúnhærðar.
Lýsing
Lauf allt að 5 sm löng, djúpflipótt, dökkgrágræn ofan og hærð, grádúnhærð neðan. Blómin 1,5 sm breið, allt að 10 blóm í þéttum hvítdúnhærðum hálfsveip. Fræflar 20 talsins. Aldin kúlulaga, 1,5 sm í þvermál, appelsínurauð, hærð.
Uppruni
SA Evrópa, V Asía
Harka
6
Heimildir
7, http://www.chewvalleytrees.co.uk
Fjölgun
Haustsáning.
Notkun/nytjar
Stakstæð tré, í beð, í þyrpingar.
Reynsla
Aðaltegundin er ekki í Lystigarðinum.