Crataegus punctata

Ættkvísl
Crataegus
Nafn
punctata
Íslenskt nafn
Kirsiþyrnir
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Samheiti
Crataegus collina Chapm., Mespilus punctata (Jacq.) Dum. Cours.
Lífsform
Lauffellandi runni eða lítið tré
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Júní-júlí
Hæð
3-7 m
Vaxtarlag
Tré með hvelfda krónu og útstæðar greinar, oft meira á breiddina en hæðina, greinar verða fljótt hárlausar. Þyrnar 5-7 sm langir.
Lýsing
Lauf 5-10 × 3-7 sm, breiðegglaga, hvassydd eða bogadregin í oddinn, grunnur fleyglaga, jaðrar tenntir og oft flipótt neðan við oddinn á blómlausum greinum. Laufin eru dökkgræn og dúnhærð bæði ofan og neðan, verða hárlaus einkum á efra borði. æðastrengjapör 5-10, alltaf samsíða, skörðótt, laufleggir 2 sm. Blóm fjölmörg, 2 sm breið, hvít, í langhærðum hálfsveipum allt að 10 sm breiðum, bikarblöð mjó, næstum heilrend. Fræflar 20, frjóhnappar bleikir, stílar 2-5. Aldin fjölmörg, 15-20 mm löng, perulaga eða hálfhnöttótt, djúprauð, með ljósari doppur, detta fljótt af.
Uppruni
A N Ameríka.
Harka
4
Heimildir
= 1, http://www.pfaf.org
Fjölgun
Haustsáning
Notkun/nytjar
Stakstæð tré eða runnar, í þyrpingar, í raðir, í beð.
Reynsla
Var sáð 1991 og gróðursett í uppeldisbeð, reyndist skammlíf þar.
Yrki og undirteg.
Crataegus punctata 'Aurea' aldin og frjóhnappar gulir. Crataegus punctata 'Ohio Pioneer' að 8 m á hæð, þyrnalaus, aldin múrsteinsrauð, blettótt.