Crataegus viridis

Ættkvísl
Crataegus
Nafn
viridis
Íslenskt nafn
Gljáþyrnir*
Ætt
Rósaætt (Rosaceae)
Lífsform
Tré
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Hvítur
Blómgunartími
Snemmsumars
Hæð
5-8 m (-12 m)
Vaxtarlag
Lauffellandi tré, 5-8 m hátt og álíka breitt, greinar útstæðar, sprotar hárlausir, þyrnar fáir og grannir, allt að 3,5 sm langir.
Lýsing
Lauf 2-5 sm, egglaga eða oddbaugótt, grunnur fleyglaga, jaðrar sagtenntir, stöku sinnum dálítið flipóttur, dökk glansandi græn á efra borði, hárlaus á neðra borði nema með hártoppa í öxlum æðastrengjanna. Blómin 1,5 sm í þvermál, hvít, mjög falleg, í hárlausum hálfsveipum, allt að 5 sm breiðum. Fræflar 20, frjóhnappar fölgulir, stílar 2-5. Aldin fá, 0,5-1 sm í þvermál, hnöttótt, skærrauð, standa lengi á trénu.
Uppruni
A Bandaríkin.
Harka
5
Heimildir
1, http://www.missouribotanicalgarsen.org
Fjölgun
Haustsáning.
Notkun/nytjar
Stakstæð tré, í þyrpingar, í beð. Lítið, blómstrandi tré gott á grasflatir, í raðir meðfram götum eða í opnu skóglendi, stök, í litlar þyrpingar eða í skjólbelti.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1994 og gróðursett í beð 2001. Hefur reynst vel í Lystigarðinum það sem af er.
Yrki og undirteg.
Crataegus viridis 'Winter King' er vinsælt yrki, ekki eins viðkvæmt fyrir sjúkdómum og önnur yrki, hefur m. a. vakið athygli fyrir ríkulega blómgun, stærri aldin, silfurlitan börk á stofninum og miklu fallegri haustliti (purpuralit og skarlatsrauð lauf).