Crocus biflorus

Ættkvísl
Crocus
Nafn
biflorus
Ssp./var
ssp. pulchricolor
Höfundur undirteg.
(Herb.) B. Mathew.
Yrki form
'Advance'
Íslenskt nafn
Páskakrókus
Ætt
Sverðliljuætt (Iridaceae).
Lífsform
Hnýði.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Ljósgulur-rjómahvítur.
Blómgunartími
Vor.
Hæð
- 8 sm
Vaxtarlag
Lýsing
Blómin ljósgul að innan, innri blómhlífarblöð rjómahvít að utan, þau ytri eru ljósfjólublá á ytra borði.
Uppruni
Yrki.
Heimildir
Upplýsingar á umbúðum hnýðanna.
Fjölgun
Hliðarhnýði.
Notkun/nytjar
Í trjábeð, í beðkanta.
Reynsla
Hnýði úr blómabúð sem voru gróðursett í beð 1996, A6-B04; 1998, J6-B40 og 2002, C11-42. Þrífast vel.