Crocus biflorus

Ættkvísl
Crocus
Nafn
biflorus
Ssp./var
ssp. pulchricolor
Höfundur undirteg.
(Herb.) B. Mathew.
Yrki form
'Ard Schenk'
Íslenskt nafn
Páskakrókus
Ætt
Sverðliljuætt (Iridaceae).
Lífsform
Hnýði.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Vor (apríl).
Hæð
8-10 sm
Lýsing
Innri blómhlífarblöð 3,4 sm, hvít, ytri blómhlífarblöðin 4 sm löng, hvít með örlitla, fjólubláa slikju á ytra borði; ginið mjög fölgult. Hulsturblað 2,5-2,6 sm.
Uppruni
Yrki.
Heimildir
Upplýsingar af umbúðum af laukunum.
Fjölgun
Hliðarhnýði.
Notkun/nytjar
Í trjábeð, í beðkanta.
Reynsla
Hnýði úr blómabúð (frá Hollandi) gróðursett í beð 1999, I5-V44. Þrífst vel og fjölgar sér.