Crocus flavus

Ættkvísl
Crocus
Nafn
flavus
Íslenskt nafn
Gullkrókus
Ætt
Sverðliljuætt (Iridaceae).
Samheiti
C. aureus Sibthorp & Smith; C. luteus Lamarck, C. maesiacus Ker-Gawler, C. lacteus Sabine
Lífsform
Hnýði.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Gulur til appelsínugulur.
Blómgunartími
Apríl-maí.
Hæð
20 sm
Vaxtarlag
Hýði hnýðanna er pappírskennt, rifnar frá grunn í samhliða trefjar. Lauf 4-8 talsins, 2,5-4 mm breið, styttri en/eða jafnlöng og blómin, græn.
Lýsing
Blóm gul til appelsínugul, ginið gult, með eða án hára. Ekkert hulsturblað. Stoðblöð eru 2 talsins. Blómhlífarblöð eru 2-3,5 sm × 6-12 mm. Frjóhnappar gulir, stíll með 3 stutta, fölgula til appelsínugula frænissepa, sem venjulega eru styttri en frjóhnapparnir.
Uppruni
S Júgóslavía, M & N Grikkland, Búlgaría, Rúmenía, NV Tyrkland.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Hliðarhnýði, sáning, hnýði lögð í september á 6-8 sm dýpi (sortum/yrkjum eingöngu fjölgað með hliðarhnýðum).
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, blómaengi, grasflatir og sem undirgróður.
Reynsla
Harðgerður. Var sáð í Lystigarðinum 2005.
Yrki og undirteg.
'Deutch Yellow' með gul blóm, Crocus flavus v. lacteus með hvít blóm, afbrigðin 'Yellow Gigant' og 'Large Yellow' eru sennilega samheiti fyrir 'Deutch Yellow'.
Útbreiðsla
Tegundin sjálf er ekki oft ræktuð en algengur, gulur krókus í görðum (hinn stóri Dutch Yellow eða Golden Yellow) er mjög líkur henni. Þetta er mjög gamall blendingur milli gulkrókusar (C. flavus) og randakrókus (C. angustifolius). Á 19. öld voru mörg afbrigði og blendingar af gulkrókus (C. flavus) ræktaðir í görðum en eru nú að mestu horfnir úr ræktun. 2Sjá Crocus × luteus Garðakrókus