Crocus kotschyanus

Ættkvísl
Crocus
Nafn
kotschyanus
Ssp./var
ssp. kotschyanus
Íslenskt nafn
Tyrkjakrókus
Ætt
Sverðliljuætt (Iridaceae).
Lífsform
Hnýði.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Ljós gráfjólublár.
Blómgunartími
Haustblómstrandi.
Hæð
10-12 sm
Vaxtarlag
Laukhnýðin mynda fjölmörg æxlikorn eða mynda stundum renglur. Skæni pappírskennt trefjar eru samhliða grunninum hálfnetæðótt efst. Lauf 4-6 talsins. Allt að 4 mm breið, hárlaus kjölurinn næstum jafn breiður og blaðkan.
Lýsing
Blómið 1 talsins, ilmar, trektin allt að 13 sm, hvít<; gin dúnhært, hvítt með gula slikju og tvær gular skellur við grunninn á hverjum flipa, sem stundum renna saman í einn stóran blett. Flipar 3-4,5 × 0,4-2 sm, föl ljósgráfjólublár með dekkri, samsíða æðar sem ná næstum upp í topp. Stíll þrídeildur, beinhvítur til fölgulur, breikkar til endanna og skiptast aftur.
Uppruni
M & S Tyrkland, NV Sýrland, M & N Líbanon.
Harka
5
Heimildir
= 1
Fjölgun
Hliðarhnýði, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í beð, undir tré og runna, sem undirgróður.
Reynsla
Á skrá í Lystigarðinum 2005, lítt reyndur hérlendis.