Crocus vernus

Ættkvísl
Crocus
Nafn
vernus
Ssp./var
ssp. vernus
Íslenskt nafn
Vorkrókus
Ætt
Sverðliljuætt (Iridaceae).
Samheiti
C. napolitanus Mordant & Loiseleur; C. purpureus Weston
Lífsform
Hnýði.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Föl- til djúppurpura.
Blómgunartími
Apríl.
Hæð
6-10 sm
Lýsing
Blóm oft föl- til djúppurpura eða rákótt, blómhlífarblöð venjulega 3-5,5 sm × 9-20 mm. Stíll venjulega jafnlangur eða lengri en fræflarnir.
Uppruni
M, S & A Evrópa, V Rússland.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Hliðarhnýði, hnýði lögð í september á 6-8 sm dýpi.
Notkun/nytjar
Í einhæðir, sem undirgróður, í blómaengi, í grasflatir.
Reynsla
Mjög gamlar plöntur eru til í Lystigarðinum. Þrífast vel. Harðgerð tegund, breytilegust af öllum krókustegundum í Evrópu.
Yrki og undirteg.
'Pickwick' ljósfblár/dökk. æðar, 'Little Dorriet' ljósfjólublár, 'Vanguard' m. tvílit blóm, 'Jeanne de Arc' og 'King of Whites' hvítir ofl. ofl.sortir
Útbreiðsla
Plöntur frá austurhluta útbreiðslusvæðisins eru oft með dökkan V-laga blett á oddi blómhlífarblaðanna. Þær hafa verið nefndar C. heuffelianus Herbert og C. scepusiensis (Rehmann & Woloszczak) Borbás.