Crocus vernus

Ættkvísl
Crocus
Nafn
vernus
Ssp./var
ssp. vernus
Yrki form
'Rememberance'
Íslenskt nafn
Vorkrókus
Ætt
Sverðliljuætt (Iridaceae).
Lífsform
Hnýði.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Silfur purpura-fjólublár.
Blómgunartími
Vorblómstrandi.
Lýsing
Silfur purpura-fjólublá blóm, einn af stórblóma afbrigðunum sem koma fyrst á vorin.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Hliðarhnýði.
Notkun/nytjar
Í trjá- og runnabeð, í beðkanta og víðar.
Reynsla
Hnýði úr blómabúð (frá Hollandi) hafa verið gróðursett í beð á ýmsum tímum, mjög víða í garðinum. Mjög gamlar plöntur eru til í Lystigarðinum. Þrífast vel.