Crocus vernus

Ættkvísl
Crocus
Nafn
vernus
Ssp./var
ssp. vernus
Yrki form
'Flower Record'
Íslenskt nafn
Vorkrókus
Ætt
Sverðliljuætt (Iridaceae).
Lífsform
Hnýði.
Kjörlendi
Sólríkur vaxtarstaður.
Blómalitur
Fjólublár.
Blómgunartími
Vorblómstrandi.
Hæð
Um 8 sm
Lýsing
Stórblóma plöntur með fjólublá blóm sem eru ljósari innan einkum við grunninn.
Uppruni
Yrki.
Harka
4
Heimildir
= 1, Upplýsingar á umbúðum laukanna.
Fjölgun
Hliðarhnýði.
Notkun/nytjar
Í trjá- eða runnabeð, í beðkanta.
Reynsla
Hnýði úr blómabúð (frá Hollandi) voru gróðursett í beð 1988, N6-02 og C11-34. Þrífst vel.