Daphne kosaninii

Ættkvísl
Daphne
Nafn
kosaninii
Íslenskt nafn
Klettasproti *
Ætt
Týsblómaætt (Thymelaeaceae)
Samheiti
Daphne oleoides Schreb. v. kosaninii Stoj.
Lífsform
Sígrænn dvergrunni
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Bleikmenguð á ytra borði en hvít innan, stundum bleik
Blómgunartími
Vor-snemmsumars
Hæð
0,2 m
Vaxtarlag
Sígrænn dvergrunni, líkur D. oleoides en hávaxnari, verður allt að 0,2 m hár og 0,3 m breiður, næstum breiðumyndandi. Greinar stuttar. Börkur rauðmengaður.
Lýsing
Lauf minni, stutt, egglaga græn-blágræn. Blóm í hnoðum, ilmand, flipar styttri. Blómin eru fjölmörg, ilmandi, bleikmenguð á ytra borði en hvít innan, stundum bleik. Aldin skær-appelsínugul.
Uppruni
SV Búlgaría. (Makedónía, Suva Gora Mts.) Í heimkynnum sínum vex plantan hátt til fjalla í klettasprungum, grýttum brekkum og opnum skógum.
Harka
Z6
Heimildir
= 1, http://www.rareplants.de, http://www.seidelbast.net
Fjölgun
Haustsáning, sumargræðlingar
Notkun/nytjar
Í steinhæðir. Ein fallegasta plantan í steinhæðina.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2009. Er í sólreit 2009. Talinn harðgerður.