Delphinium cheilanthum

Ættkvísl
Delphinium
Nafn
cheilanthum
Íslenskt nafn
Keiluspori
Ætt
Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Blár.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
30-100 sm
Vaxtarlag
Fjöllær jurt með ógreinda stöngla eða greinótta með lauf, 30-100 sm háir.
Lýsing
Laufin stór, kringlu-hjartalaga eða nýrlaga, djúp 3-flipótt, miðflipinn skiptist aftur í 3 flipa, tennta eða heilrenda, hárlausa ofan dúnhærða neðan, efri laufin eru minna skert. Blómin í margblóma klasa, blá, bikarblöð egglaga til oddbaugótt, snubbótt, dúnhærð, allt að 2,5 sm, sporinn beinn, boginn í toppinn, allt að 1,8 sm. Efri krónublöðin blá eða gul, hárlaus, neðri krónublöðin dúnhærð. Fræhulstur 3, hárlaus, 2 sm.
Uppruni
Síbería, A Asía.
Harka
4
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting að vori eða hausti, græðlingar með hæl að vori.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð, sem stakstæðar plöntur eða í raðir.
Reynsla
Ágætt að skipta á nokkurra ára fresti eins og öðrum sporum. Er talinn einn forfeðra ýmissa kynblendinga riddaraspora.