Dianthus arenarius

Ættkvísl
Dianthus
Nafn
arenarius
Íslenskt nafn
Sandadrottning
Ætt
Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, skuggþolin.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst (september).
Hæð
10-30 sm
Vaxtarlag
Þýfður, grasgrænn, hárlaus fjölæringur, allt að 30 sm hár, stönglar grannir.
Lýsing
Lík D. plumarius en laufin bandlaga, styttri en 4 sm og mun mjórri eða aðeins um 1-2 mm á breidd, oftast gras-dökkgræn. Blóm oftast stök, hlutfallslega stór eða um 2 sm í þvermál, stök á stuttum stilkum. Bikar allt að 2,5 sm, mjór. utanbikarblöð 2 eða 4, egglaga með stuttan odd, ekki meira en 1/3 af lengd bikarsins. Krónutungan um 12 mm, blúndujöðruð, skipt niður að miðju, með skegg, hvít eða ljósbleik.
Uppruni
N & A Evrópa (Skandinavia, Þýskaland).
Harka
3
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í ker, í steinhæðir, í hleðslur, í kanta, í fláa.
Reynsla
Harðgerð, þrífst vel í Lystigarðinum. Þolir meiri skugga en flestar aðrar Dianthus-tegundir.