Dianthus chinensis

Ættkvísl
Dianthus
Nafn
chinensis
Íslenskt nafn
Kínadrottning
Ætt
Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
Samheiti
D. amurensis Jacques
Lífsform
Tvíær-skammlífur fjölæringur, ræktuð sem sumarblóm.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Ýmsir rauðir litir og hvítt.
Blómgunartími
Júní-september.
Hæð
15-60 (70) sm
Vaxtarlag
Kínadrottningin er venjulega dálítið hærð.
Lýsing
Grunnlaufin visna áður en plantan blómstrar. Stöngullauf lensulaga, ydd. Blómskipunin er strjálblóma 15 blóma klasi, blómin stór. Bikar um 2 sm, utanbikarblöð 4 til 6, mjókka snögglega í langan odd, um hálf lengd bikarsins. Krónutunga um 1,5 sm, öfugegglaga djúptennt eða klofin næstum til hálfs, bleik-lilla með purpura auga.
Uppruni
Kína.
Harka
7
Heimildir
1
Fjölgun
Sáning inni í gróðurhúsi í apríl, forræktuð fram í júní.
Notkun/nytjar
Í ker, í sumarblómabeð, í kanta.
Reynsla
Viðkvæm, eingöngu ræktuð sem sumarblóm hérlendis.
Yrki og undirteg.
Fjölmargar sortir í ræktun og það bætist við þær á hverju ári. ´Heddewigii' er hópur af þéttvöxnum, mjög blómviljugum yrkjum.