Dianthus glacialis

Ættkvísl
Dianthus
Nafn
glacialis
Íslenskt nafn
Jökladrottning
Samheiti
D. gelidus Schott, Nyman & Kootschy
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikur.
Blómgunartími
Júlí-ágúst.
Hæð
10 sm
Vaxtarlag
Þéttþýfður fjölæringur, oftast hárlaus, allt að 10 sm.
Lýsing
Lauf meira eða minna bandlaga, snubbótt, glansandi, mjúk viðkomu. Blóm venjulega stök á stuttum stönglum með aðeins 1-2 laufpör. Bikar 1,2 - 1,6 sm breikka upp á við. Utanbikarflipar 2 eða 4, egglaga-lensulaga með langan odd, næstum jafnlangir og bikarinn. Krónutungan 8-12 mm, fíntennt og með skegg, bleik með hvítt 'auga' og ljós á neðra borði,
Uppruni
A Alpar & Karpatafjöll.
Harka
5
Heimildir
= 1, 2
Fjölgun
Sáning, græðlingar.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í ker, í kanta, í breiður.
Reynsla
Lítt reynd hér enn sem komið er. Þarf sennilega vetrarskýli.
Yrki og undirteg.
D. x roysii (náttúrulegur blendingur D. glacialisx D. gratianopolitanus) er mjög eftirsóknarverður, blómviljugur með stórt blóm, hálf ofkrýndur.D. ´Roseus´ er yrki með djúpbleik blóm.D. glacialis ssp. gelidus er með hvít blóm.