Dianthus gratianopolitanus

Ættkvísl
Dianthus
Nafn
gratianopolitanus
Íslenskt nafn
Laugadrottning
Ætt
Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
Samheiti
D. caesius Smith
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Bleikur-rauður.
Blómgunartími
Maí-júní.
Hæð
10-20 sm
Vaxtarlag
Þéttvaxin jurt sem myndar breiður, hárlaus og bláleit með trékenndan grunn, allt að 20 sm há.
Lýsing
Lauf allt að 5 sm, bandlaga, næstum flöt. Blóm stór, oftast stök, ilma mikið, á uppréttum stönglum með 2-3 pör af laufum. Bikar 1,2-2 sm, utanbikarflipar, egglaga með stuttan odd, u.þ.b. 1/3 af bikarnum. Krónutunga 1-1,2 sm, öfugegglaga með óreglulegar tennur stundum með dálítið skegg, bleik eða rauð.
Uppruni
M og V Evrópa frá SV Englandi til V- Ukraínu
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Sáning, sumargræðlingar, sortir/yrki má rækta upp af fræi.
Notkun/nytjar
Í ker, í steinhæðir, í hleðlsur, í kanta, í fjölæringabeð eða sem þekjuplanta.
Reynsla
Eftirsótt steinhæðaplanta með all mörg yrki, ofkrýnd og með ýmsum litum. Harðgerð, kölluð hvítasunnunellika víða erlendis.
Yrki og undirteg.
'Feurhexe' með dökkrauð blóm.'Splendens' dökkrósrauð. 'Ornament' breytileg. 'Feuerzauber'(Fire Witch) (K. & S.) gráblá, silfruð, döggvuð þúfa, 15 sm há, skærpurpurarauð. Blómstrar í júlí- ágúst. 'Grandiflorus' rósrauð.'Pummelchen'(Butterball) dvergvaxin planta, góð í litla garða, 5 sm, bleik. Blómstrar í júlí- ágúst.'Nordstjernen' (North Star) (Agriculture College; Aas, Norway), þétt stálblá þúfa, 15 sm, bleikrauð.