Dianthus microlepis

Ættkvísl
Dianthus
Nafn
microlepis
Íslenskt nafn
Álfadrottning
Ætt
Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skærbleikur (sjaldan hvítur).
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
5 sm
Vaxtarlag
Þéttvaxin, grágræn, þýfð, fjölær jurt, með mjög stutta stöngla oftast lægri en 2 sm og með 1 eða 2 pör af hreisturlíkum stöngullaufum. Grunnlauf allt að 2 sm, bandlaga, snubbótt með áberandi miðtaug.
Lýsing
Blóm stök, bikar um 1 sm, víkkar upp á við. Utanbikarblöð 2, egglaga, ná varla ½ lengd bikarsins. Krónutungan 6-7 mm, óreglulega tennt, með skegg, skærbleik (sjaldan hvít).
Uppruni
Búlgaría (fjöll).
Harka
5
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Sáning, græðlingar, skipting að vori.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í beð, í ker, í kassa.
Reynsla
Lítið reynd en virðist harðger (H. Sig.). Lítt reynd í Lystigarðinum. Í Evrópuflórunni er þess getið að hún þurfi vetrarskýli.