Dianthus myrtinervius

Ættkvísl
Dianthus
Nafn
myrtinervius
Íslenskt nafn
Þústudrottning
Ætt
Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Skærbleikur.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
2-5 sm
Vaxtarlag
Hárlaus, þýfðu fjölær jurt með allt að 5 sm háa stöngla.
Lýsing
Laufin smá, oddbaugótt til aflöng, snubbótt. Blómin stök á mjög stuttum stönglum. Bikar 5-9 mm, bjöllulaga, græn. Utanbikarblöð 2 eða 4, ytra parið oftast líkt laufi, næstum jafn löng og bikarinn. Krónutungan 4-6 mm, öfugegglaga, lítið eitt skeggjuð, tennt, skærbleik.
Uppruni
Endemísk í fjöllum í Grikklandi og í Júgóslavíu.
Harka
7
Heimildir
= 1, 2
Fjölgun
Sáning, græðlingar, (skipting að vori).
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í kanta, í ker, í kassa.
Reynsla
Stutt reynsla, er í uppeldi á reitasvæði.