Dianthus zonatus

Ættkvísl
Dianthus
Nafn
zonatus
Íslenskt nafn
Hringadrottning
Ætt
Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Djúpbleikur, gulleitur á neðra borði krónutungunnar.
Blómgunartími
Júlí-september.
Hæð
20-30 sm
Vaxtarlag
Þýfð fjölær jurt, allt að 30 sm há.
Lýsing
Lauf allt að 8 sm, bandlaga. Blóm stök, bikar um 2 sm, langar, odddregnar tennur. Utanbikarflipar 4-8, lang-odddregnir, meira en ½ lengd bikarsins. Krónutungan um 1,2 sm, djúpbleik, gulleit neðan.
Uppruni
Tyrkland, V- Sýrland (fjöll).
Harka
7
Heimildir
= 1, 2
Fjölgun
Sáning að vori, græðlingar að hausti, (skipting að vori).
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í ker, í kassa, í kanta, í hleðslur.
Reynsla
Lítt reynd, er í uppeldi árið 2005