Digitalis lutea

Ættkvísl
Digitalis
Nafn
lutea
Íslenskt nafn
Gulbjörg
Ætt
Grímublómaætt (Scrophulariaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Ljósgulur.
Blómgunartími
Júlí.
Hæð
50-80 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, 60-100 sm há, hárlaus eða ögn dúnhærð.
Lýsing
Lauf öfuglensulaga, með ógreinilegar tennur. Blómklasinn nokkuð þéttur, með mörg blóm. Bikarflipar band-lensulaga, hvassyddir, kirtilrandhærðir. Krónan 9-25 mm, fölgul til hvít, efri vörin tvískipt, hliðarflipar neðri varar egglaga, miðflipinn 6 mm, egglaga eða oddbaugóttur.
Uppruni
V og VM Evrópa til S Ítalíu og NV Afríku.
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í beð á skýldum stöðum.
Reynsla
Meðalharðgerð-harðgerð, sérkennileg og falleg planta sem óx lengi í Lystigarðinum. (H. Sig.).