Dodecatheon frigidum

Ættkvísl
Dodecatheon
Nafn
frigidum
Íslenskt nafn
Snægoðalykill
Ætt
Maríulykilsætt (Primulaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Snemmsumars.
Hæð
10-20 sm
Vaxtarlag
Plöntur hárlausar eða kirtilhærðar.
Lýsing
Lauf 2-9 x 1-3 sm, spaðalaga til egglaga, mjókka stundum snögglega að grunni, jaðar sléttur eða með tungur eða tentir. Blómstönglar 9-18 sm með allt að 5 blóm. Króna með 5 flipa, allt að 1,5 sm, flipar rauðrófupurpura til ljósgráfjólubláir. Frjóþræðir < 1 mm, lausir hver frá öðrum, krónan nær alveg yfir grunninn. Frjóhnappar purpura, 4-4,5 sm, toppyddir, tengsl slétt. Fræni ekki stækkuð. Fræhýðistennur sljóyddar.
Uppruni
Síbería, Alaska, NV Kanda.
Harka
3
Heimildir
1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í fjölæringbeð, í kanta.
Reynsla
Í N1 frá 1994 (ógreind)