Doronicum plantagineum

Ættkvísl
Doronicum
Nafn
plantagineum
Íslenskt nafn
Gemsufífill
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól, hálfskuggi.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
50-80 sm
Vaxtarlag
Jarðstönglar mynda brúsk.
Lýsing
Stönglar allt að 80 sm háir, dúnhærðir. Grunnlauf oddbaugótt, mjóka í lauflegginn, 5x3-11x5 sm, heilrend eða hálftennt, legglauf egglaga til lensulaga. Körfur stakar, allt að 5 sm í þvermál, blómskipunarleggir allt að 5 sm í þvermál, reifablöð allt að 20 mm, 2/3 lengd af geislablómanna, jaðarblómin ekki með svifhárkrans.
Uppruni
V Evrópa til N Frakkland.
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Sem undirgróður, í fjölæringabeð, í þyrpingar.
Reynsla
Harðgerð jurt, mjög vinsæl á Akureyri. Þolir vel skugga og er auðræktuð, þarf þó stuðning nema í góðu skjóli.