Draba arctogena

Ættkvísl
Draba
Nafn
arctogena
Íslenskt nafn
Heiðavorblóm
Ætt
Krossblómaætt (Brassicaceae).
Samheiti
Draba groenlandica E. Ekman v. arctogena E. Ekman, Svensk Bot. Tidskr. 23: 486. 1930; D. cinerea Adams v. arctogena (E. Ekman) B. Boivin
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
3-14 sm
Vaxtarlag
Þýfður fjölæringur, stöngulstofn greinóttur(stundum með langæar laufleifar) myndar stundum leggi á blómleggnum. Stönglar ógreindir, 3-14 sm, dúnhærðir, hæringin ógreind, 0,2-1 mm og 2-5-geisla, 0,05-0,3 mm. Grunnlauf í hvirfingum, með lauflegg. Grunnur leggsins og jaðrar randhærðir, (hæringin oftast ógreind, 0,2-1 mm), blaðkan öfuglensulaga til mjó öfugegglaga, 0,4-1,7 sm x 1,5-6 mm, heilrend eða með 1-3 tennur á hvirri hlið, dúnhærð bæði ofan og neðan einkum með ógreind hár, 0,3-1 mm, með leggjaða 4-10 geisla hæringu á neðra borði, 0,1-0,2 mm. Legglauf 0-1, legglaus, blaðkan egglaga til aflöng, jaðrar tenntir eða heilrendir, dúnhærð á báðum borðum eins og grunnlaufin.
Lýsing
Blómklasar 2-14(-17)-blóma, ekki með stoðblöð, lengjast við aldinþroskann, aðalleggur ekki bugðóttur, dúnhærður eins og stöngullinn. Aldinleggir hálfuppréttir til uppsveigðir, beinir, 1-5(-7) mm, dúnhærðir, hárin ógreind og 2-4 geisla. Bikarblöð egglaga, 1,8-2,5 mm, dúnhærð (hárin ógreind og leggstutt, 2-4-geisla). Krónublöðin hvít, spaðalaga, 3-4 x 1,5-2 mm, frjóhnappar egglaga, 0,3-0,4 mm. Skálpar aflangir, sléttir, útflattir, 4-9 x 2-3,5 mm, skálpalokar dúnhærðir, hár stuttleggjuð, 2-4 geisla, 0,1-0,5 mm, stundum ógreind hár. Eggbú 20-32 í hverju egglegi, stíll 0,1-0,4 mm (fræni greinilega breiðara en stílinn). Fræ egglaga, 0,7-1 x 0,5-0,6 mm.
Uppruni
Grænland.
Heimildir
= www,efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=1&taxon-id=250094718 Flora of North America
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum 2015.
Útbreiðsla
Draba arctogena er stundum ruglað saman við D. norvegica, en klasar með aldin eru ekki eins langir, hár á neðra borði laufa eri 4-10 geisla (í samanburði við krosslaga eða sjaldan 2-6-geisla hárum) og aldinum með 2-4 geisla hárum, 0,1-0,5 mm (í samanburði við hárlaus eða með ógreind hár og 2-4 geisla hárum, 0,05-0,25 mm).