Draba cinerea

Ættkvísl
Draba
Nafn
cinerea
Íslenskt nafn
Freravorblóm
Ætt
Krossblómaætt (Brassicaceae).
Samheiti
Draba magellanica Lamarck ssp. cinerea (Adams) E. Ekman
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júní-júlí.
Hæð
3-27 sm
Vaxtarlag
Þýfður fjölæringur, stöngulstofn ógreindur eða greindur, sjaldan með blómleggi. Stönglar ógreindir, (3-)5-16(27) sm háir, dúnhærðir, hárin með 4-10 geisla, 0,1-0,3 mm (oft eru sumir geislanna greinóttir, einföld hár fá, allt að 0,6 mm). Grunnlauf í blaðhvirfingu, með legg, grunnur laufleggja og blaðkan næst laufleggnum randhærð,(hár ógreind, 0,2-0.8 mm), blaðkan öfuglensulaga til mjó öfugegglaga eða bandlensulaga, 0,4-1.5 sm x 1-5 mm, venjulega heilrend, sjaldan með eina tönn á hvorri hlið, þéttdúnhærð á bæði ofan og neðan, hárin með stuttan legg, stjörnulaga, 8-12 geisla, hár 0,1-0,25 mm (miðtaug á neðra borði ógreinileg, efstu hár ógreind). Stöngullauf 0-3(-5), legglaus, blaðkan egglaga eða aflöng til lensulaga, heilrend, dúnhærð bæði ofan og neðan eins og grunnlaufin. Lík D. dahurica en alþakin þéttri, hvítri stjarnhæringu. Skálpar flatir.
Lýsing
Blómklasar (eru (3-)5-17(-24) blóma, ekki með stoðblöð, lengjast við aldinþroskann, aðalleggur ekki bugðóttur, dúnhærður eins og stönglarnir. Aldinleggir breiðgreindir-uppsveigðir eða uppsveigðir, beinir, (3-)4-7(-9) mm, dúnhærðir eins og stöngullinn. Bikarblöð egglaga, 1,7-2,5 mm, dúnhærðir, (hár ógreind og með stuttan legg, (2- eða 3-geisla). Krónublöð hvít, spaðalaga eða öfugegglaga, 3,5-4,5 x 1,5-2 mm, frjóhnappar egglaga, 0,3-0,4 mm. Skálpar aflangir til oddbaugóttir, sléttir, ögn útflattir, 5-8 x 2-3 mm, skálplokar dúnhærðir, hár með stuttan legg, 2-5-geisla, 0,05-0,3 mm (sumir geislanna eru greinóttir). 20-36 eggbú í hverju egglegi. Stíll (0,1-)0,2-1 mm. Fræ egglaga, 0,6-0,8 x 0,4-0,6 mm.
Uppruni
Grænland, Ontario, Quebec, yukon, Alaska, E veópa (Finnalnd, Noregur) E Asía (Rússland, Síbería).
Harka
4
Heimildir
1, www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=1&taxin-id=240094752, Flora of North America
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir.
Reynsla
Í Lystigarðnum eru til tvær plöntur sem sáð var til 2007 og gróðursett í beð 2008 og sem sáð var til 2013 og gróðursett í beð 2015, báðar þrífast vel.
Yrki og undirteg.
Sama tegund og Draba arctica.