Draba corymbosa

Ættkvísl
Draba
Nafn
corymbosa
Íslenskt nafn
Sveipvorblóm*
Ætt
Krossblómaætt (Brassicaceae).
Samheiti
Draba alpina Linnaeus v. bellii (Holm) O. E. Schulz; D. alpina var. corymbosa Durand; D. barbata Pohle; D. bellii Holm; D. kjellmanii Lid ex E. Ekman; D. macrocarpa Adams; D. vestita Davidson
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Júní-ágúst.
Hæð
5-15 sm
Vaxtarlag
Þýfður fjölæringur, stöngulstofn greinóttur (með langæ lauf eða laufarestir, greinarnar enda oft í ófrjórri blaðhvirfingu, með blómlegg. Stönglar ógreindir, (0,5-)2-8(-15) sm, dúnhærðir, hárin ógreind og með 2 geisla, 0,4-1 mm, hár með 3-5 geisla, 0,05-0,4 mm (stundum eru flest hárin ógreind). Grunnlauf í hvirfingu, með legg, grunnur leggjanna og jaðar laufanna randhærður (hárin oft gróf, ógreind, 0,4-1,3 mm). Laufblaðkan öfuglensulaga til öfugegglaga, 0,6-1,8 sm x 1,5-5 mm, heilrend, dúnhærð bæði ofan og neðan, dúnhár á neðra borði með legg, 2-6 geisla, 0,2-0,6 mm, hár á efra borði ógreind og með legg, 2-geisla, allt að 1,1 mm með 3-5 geisla, 0,2-0,4 mm. Engin stöngullauf.
Lýsing
Blómklasar 2-9(-12)-blóma, ekki með stoðblöð, (hálfsveipur), lengist lítið eitt við aldinþroskann, aðalblómskipunarleggurinn ekki bugðóttur, dúnhærður eins og stöngullinn. Aldinleggir gleiðgreindir-uppsveigðir, beinir eða dálítið bognir upp á við, 4-11(-16) mm, dúnhærðir, allt að 1 mm, hár ógreind og 2-4-geisla. Bikarblöð grágræn, breiðegglaga, 2,2-3 mm, dúnhærð (hárin ógreind, allt að 1 mm, stundum með legg, minni, 2-4-geisla). Krónublöðin (breið-hálfupprétt), gul, öfugegglaga, 4-6 x 3-5 mm. Frjóhnappar egglaga, 0,3-0,4 mm. Skálpar aflangir eða egglaga, sléttir, útflattir, 6-12 x 3,5-5,5 mm, skálpalok dúnhærð eða smádúnhærð, hár ógreind, 0,1-0,4 mm (stundumm með stuttan legg, 2- eða 3-geisla). Eggbú 12-24 í hverju egglegi. Stíll 0,6-1 mm (fræni greinilega breiðara en stíllinn). Fræin brún, egglaga, 1-1,3 x 0,6-0,9 mm.
Uppruni
Grænland, Yukon, Alaska, Evrópa (Noregur, N Rússland) A Asía (Rússland-Síbería).
Heimildir
www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=1&taxon-id=250094739, Flora of North America
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir.
Reynsla
Í Lystigaðinum eru til tvær plöntur, sem sáð var til 2009 og 2010 og gróðursettar í beð 2015.