Draba fladnizensis

Ættkvísl
Draba
Nafn
fladnizensis
Íslenskt nafn
Heiðavorblóm
Ætt
Krossblómaætt (Brassicaceae).
Samheiti
Draba fladnizensis var. pattersonii (O. E. Schulz) Rollins; D. pattersonii O. E. Schulz; D. pattersonii var. hirticaulis O. E. Schulz; D. wahlenbergii Hartman
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júní-ágúst.
Hæð
3-13 sm
Vaxtarlag
Fjölæringur, stundum þýfður, stöngulstofn ógreindur eða greindur (með langæ lauf við grunninn), oftast með blómleggi. Stönglar ógreindir, (2-)3-10(-13) sm háir, hárlausir. Grunnlauf í hvirfingum, leggur ógreinilegur, jaðar randhærður (hár ógreind eða 2-geisla, 0,25-0,6 mm). Laufblaðkan bandlaga til öfuglensulaga eða mjó-öfugegglaga, hár ógreind, stundum með fá, leggstutt, 2-geisla hár (miðtaugin áberandi), oft hárlaus á efra borði. Stöngullauf 0-2, legglaus, blaðkan aflöng til egglaga, heilrend (randhærð).
Lýsing
Blómklasar (2 eða)3-11(-14)-blóma, oftast ekki með stoðblöð, miðblómin sjaldan með stoðblað, blómklasinn lengist við aldinþroskann, aðal blómskipunarleggurinn ekki bugðóttur, hárlaus. Aldinlegggir gleiðgreindir-uppsveigðir, oft beinir, (1-)2-5(-6) mm, hárlausir. Bikarblöð (græn eða purpura) egglaga, 1,2-2,2 mm, hárlaus eða dúnhærð, (hárin ógreind). Krónublöð hvít, spaðalaga, 2-2,5 x 0,8-1,5 mm. Frjóhnappar egglaga, 0,2-0,25 mm. Skálpar oddbaugðóttir-lensulaga til aflangir, sléttir, útflattir, 3-8(-9) x 1,5-2 mm, skálpalokar hárlausir. Eggbú 12-24 í herju egglegi. Stíll 0,05-0,2(-0,3) mm. Fræ aflöng til oddbaugótt.
Uppruni
Grænland, Yukon, Alaska, Bandaríkin, M & S Evrópa, Asía, pólhverf og háfjallaplanta.
Heimildir
= www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=1&taxon-id=200009446, Flora of North America.
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir.
Reynsla
Ekki í Lystigarðinum 2015, hefur verið af og til í í arktíska beðinu.