Draba glacialis

Ættkvísl
Draba
Nafn
glacialis
Íslenskt nafn
Jöklavorblóm
Ætt
Krossblómaætt (Brassicaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Gulur.
Blómgunartími
Maí.
Hæð
um 10 sm
Vaxtarlag
Náskyld D. alpina, en laufin eru með enn þéttari stjarnhár og ögn stærri blóm.
Lýsing
Þýfð, fjölær jurt, um 10 sm há. Stönglar jarðlægir og skjóta rótum við grunninn, uppréttir ofantil, laufóttir, hærðir, hárin aftureveigð og oftast greinótt. Laufin 0,25 sm löng, stakstæð, bandlensulaga, oddlaus, bláleit, þéttstæðmeð greinótt hár bæði ofan og neðan, hálfupprétt og samanlukt efst. Blómskipunarleggir 5 sm langir, þráðlaga, vaxa næstum neðst frá stönglinum á móti laufinu, ögn bugðóttir, lítt hærðir, hárin oftast greinótt. Blómleggir um það bil jafn langir og blómin, lengjast um leið og skálparnir koma, næstum sléttir, neðstu stöku sinnum með stoðblað. Bikar úttútnaður, ögn dúnhærður, oddlaus, gulgrænn. Krónan gul, lengri en bikarinn, krónubloð öfugegglaga, framjöðruð, með æðar, nöglin stutt. Fræni hnúðlaga, gult. Stíll mjög stuttur, grænn. Skálpar egglaga, sléttir. fræ um 12 talsins.
Uppruni
NA Evrópa, NA Norður-Ameríka.
Heimildir
= Pan-arctic flora, nhm2.uio.no/paf/672107, encyclopaedia.alpinegardensociey./net/plants/Draba/glacialis, The Edinburgh New Philosopical Journal, https://books.google.is/books?id=qCkAAAAAMAAJ
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir.
Reynsla
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð ar til 20012 og gróðursett í beð 2013.