Draba simonkaiana

Ættkvísl
Draba
Nafn
simonkaiana
Íslenskt nafn
Karpatavorblóm*
Ætt
Krossblómaætt (Brassicaceae).
Lífsform
Fjölær jjurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Júní.
Hæð
- 7 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt með þéttar blaðhvirfingar. Stönglar allt að 7 sm háir. Grunnlauf 3-12 x 1-2 mm, öfuglensulaga, heilrend að mestu, stjarnhærð-gráloðin og randhærð. Stöngullauf 0-3, stönglar og laufleggir með einföld og greinótt hár.
Lýsing
Blómskipunin 3- til 16-blóma. Krónublöð 3-4 mm, hvít. Skálpar 5-6 mm þaktir stuttum ógreindum hárum og greinóttum,ekki aðlægum. Fræni 0,7-1 mm, 2-flipótt, þráðmjó. Mjög lík Draba austriaca en með smærri blóm.
Uppruni
SA Karpatafjöll (endemísk).
Heimildir
= encyclopaedia.alpinegardensociety.net./plants/Draba/simonkiana, www.plant-journal.uaic.ro/docs/2014/13.pdf
Fjölgun
Sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í hleðslur.
Reynsla
Ein planta undir þessu nafni er í sólreit 2015.