Draba smithii

Ættkvísl
Draba
Nafn
smithii
Íslenskt nafn
Þekjuvorblóm*
Ætt
Krossblómaætt (Brassicaceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur.
Blómgunartími
Maí-júlí.
Hæð
10-24 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt sem myndar breiður. Stöngulstofn greinóttur (með langæar leifar af laufum, greinarnar eru grannar, jarðlægar, enda stundum í blómlausum blaðhvirfingum. Myndar ekki leggi á blómleggjunum. Stönglar oftast ekki greindir, (5-)10-24(-30) sm, dúnhærðir, hárin með stuttan legg, kvíslhærð, 4-12-geisla, 0,05-0,2 sm. Grunnlauf í hvirfingum, laufleggur ógreinilegur, oftast ekki randhærður, sjaldan hærð neðst (hár ógreind eða hvasydd, allt að 0,25 mm). Blaðkan öfugegglaga til mjó öfuglensulaga, 0,5-1,3(-2,5) sm x (1-)2-4(-7) mm, heilrend, sjaldan smátennt, dúnhærð bæði ofan og neðan með leggstuttum kvíslhárum. 5-12 geisla hár, 0,05-0,3 mm. Stöngullauf (2 eða) 3-8, legglaus. Blaðkan aflöng til lensulaga, venjulega heilrend, sjaldan smátennt, dúnhærð eins og grunnlaufin, eða sjaldan með legglönghár á efra borði, 2-5 geisla hár.
Lýsing
Blómklasar 12-28 blóma, ekki með stoðblað, lengist við aldinþroskann, aðalblómskipunarleggurinn ekki bugðóttur, dúnhærður eins og stönglarnir. Aldinleggir gleiðgreindir, beinir 83-)5-10(-13) mm, dúnhærðir eins og stöngullinn. Bikarblöð egglaga, 2-2,5 mm, dúnhærð. Krónublöð hvít, spaðalaga, 4-6 x 2-3 mm. Frjóhnappar egglaga, 0,5-0,6 mm. Skálpar egg-lensulaga, snúnir, útflattir, 5-9 x 2-3 mm. Skálpalokar dúnhærðir, hárin ógreind og með stuttan legg, 2-4 geisla, 0,05-0,2 mm. Eggbú 16-20 í hverju egglegi. Stíll (0.7-)1-2(-2,3) mm. Fræ aflöng, 0,8-1,2 x 0,5-0,7 mm.
Uppruni
Kólóradó.
Heimildir
www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=1&taxon=250094831, Flora of North America
Fjölgun
Sáning, skipting.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í hleðslur.
Reynsla
Í Lystigarðinum er ein planta sem sáð var til 2011 og gróðursett í beð 2013.