Drymocallis geoides

Ættkvísl
Drymocallis
Nafn
geoides
Íslenskt nafn
Grikkjamura
Ætt
Rósaætt (Rosaceae).
Samheiti
Potentilla geoides M. Bieb., Geum ponticum Lehm.. Geum potentilloides Pall.
Lífsform
Fjölær jurt
Kjörlendi
Sól
Blómalitur
Gulur
Blómgunartími
Júní
Hæð
- 15 sm
Vaxtarhraði
Réttar: Potentilla geoides sjá þar.
Lýsing
Mjúk-stinnhærður, þýfður, fjölæringur, 10-15 sm hár, límkenndur. Grunnlauf með langan legg, fjöðruð. Smálauf í 3-4 pörum, kringluleit, sagtennt. Legglauf þrífingruð. Blómin bjöllulaga, krónublöð öfugegglaga, gul.
Uppruni
Kákasus, A Europa.
Heimildir
http://www.kadel.cz
Fjölgun
Sáning, skipting. Hægt er að taka græðlinga síðsumars og á haustin. Sáð að vori, fræ rétt aðeins þakið. Spírar á 1-3 mánuðum við 18-20 °C.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir.
Reynsla
Mjög stutt reynsla, plöntunni var sáð 2010 og gróðursett í beð 2011.