Echinops exaltatus

Ættkvísl
Echinops
Nafn
exaltatus
Íslenskt nafn
Broddþyrnikollur
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Hvítur, gráleitur.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
50-100 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, 40-100 sm há, stönglar ógreindir eða greinóttir, skúmhærðir-lóhærðir, stundum meira eða minna hárlausir.
Lýsing
Laufin ögn stinnhærð ofantil, lóhærð neðantil, jaðrar þétt smásnarpir, egglaga til oddbaugótt, flatir, 1-2 fjaðurskiptir, flipur þríhyrndir jaðrar með fáar, stuttar, granna þyrna. Körfur 3,5-6 sm í þvermál, hvítar eða gráar sjaldan með græna slikju. Reifar 20-30 mm, ytri þornhár hálf lengd reifanna, neðri hlutinn samvaxinn, innri reifablöð um 20, langydd, randhærð, ytri reifablöðin spaðalaga, smáblómin hvít eða grá. Þornhár svifhárakransanna eru samvaxin við grunninn.
Uppruni
A Evrópa til Rússlands.
Harka
3
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í þyrpingar, í skrautblómabeð, í þurrblómaskreytingar.
Reynsla
Harðgerð tegund, og ein algengasta tegundin af þessari ættkvísl í görðum en oft undir einhverju öðru nafni (H.Sig.). Þarf stuðning þegar líður á sumarið, sérstaklega þar sem vindasamt er.