Echinops ritro

Ættkvísl
Echinops
Nafn
ritro
Íslenskt nafn
Bláþyrnikollur
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Stálblár.
Blómgunartími
September.
Hæð
50-70 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, 20-60 sm hár, stönglar oftast greinóttir, næstum hárlausir eða hvítlóhærðir oft með kirtilhár.
Lýsing
Lauf hárlaus, kirtilhærð, með fáein bein hár eða ögn skúmhærð ofan, hvítlóhærð neðan, oddbaugótt, 1-2 fjaðurflipótt, flipar meira en 4 mm við grunninn, bandlaga-þríhyrnd, jaðar niðursveigður, með þyrna allt að 15 mm. Körfur 3,5-4,5 sm í þvermál, blá, reifar 12-17 mm, ytri þornhár ögn styttri en ytri reifablöð, 1/3 til 1/2 af lengd reifanna.Reifablöð 20-22, langydd, randhærð, ytri reifablöð lensulaga, smáblómin blá, sjaldan hvít. Þornhár svifhárakransanna samvaxin við að minnsta kosti hálfan grunninn.
Uppruni
M & A Evrópa til M Asíu.
Harka
3, H2
Heimildir
= 1,2
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í skrautblómabeð, í þyrpingar, í þurrblómaskreytingar.
Reynsla
Harðgerð og auðræktuð tegund sem hefur verið lengi í ræktun hérlendis.
Yrki og undirteg.
'Veitchs Blue' er sögð mjög góð sort en hefur ekki verið reynd hérlendis svo vitað sé.'Taplow Blue'er í ræktun í Lystigarðinum og hefur staðið sig vel og blómgast í bestu árum.Echinops ritro ssp. ritroLauf 1-2 x fjaðurskipt, flipar meira en 4 mm á breidd við grunninn og má finna víðast hvar á útbreiðslusvæði tegundarinnar.Echinops ritro ssp. ruthenicus (Bieb.) Nyman (Syn. E. ritro ssp. tenuifolius, E. ruthenicus Bieb., E. virgatus Lam.). Er með tví-fjaðurskipt lauf, flipar ekki meira en 2 mm á breidd og er að finna frá Ítalíu og Austurríki og eitthvað austur á bóginn.