Echinops ruthenicus

Ættkvísl
Echinops
Nafn
ruthenicus
Íslenskt nafn
Gljáþyrnikollur
Ætt
Körfublómaætt (Asteraceae).
Samheiti
Echinops ritro L. non hort. ssp. ruthenicus (Bieb.) Nyman.
Lífsform
Fjölær jurt.
Kjörlendi
Sól.
Blómalitur
Blár-djúpblár.
Blómgunartími
Ágúst-september.
Hæð
20-90 sm
Vaxtarlag
Fjölær jurt, 20-90 sm há. Stönglar ógreindir eða lítið eitt greindir, þétt hvít-ullhærðir, grunnur þakinn leifum gamalla laufa.
Lýsing
Laufin dökk græn og hárlaus ofan, þétt hvít-ullhærð neðan, jaðrar innundnir, með stutta og fáa þyrna. Grunnlauf allt að 45 x 20 sm, öfuglensulaga til oddbaugótt, fara minnkandi upp eftir stönglinum. Körfur 1-8, allt að 4,5 sm í þvermál, blá, reifar 10-20 m, ytri þornhár ¼ til ¾ af lengd reifanna. Reifablöð 18-22, grunnur dökkur, þríhyrnd, randhærð. Smáblómin djúpblá. Þornhár svifkransins samvaxin á stuttum kafla.
Uppruni
SA Evrópa & S Rússland - A Kína
Harka
6
Heimildir
= 1
Fjölgun
Skipting, sáning.
Notkun/nytjar
Í steinhæðir, í skrautblómabeð, í þyrpingar, í þurrblómaskreytingar.
Reynsla
Harðgerð og auðræktuð tegund (Echinops ritro ssp. ruthenicus í HS).